Farmbréfakerfi Rue de Net

Farmbréfakerfi

Rue de Net
Vilt þú nákvæmara og fljótlegra ferli í skráningu farmbréfa?


Hvað er Farmbréfakerfi Rue de Net?

Farmbréfakerfið nýtir sér innbyggða virkni Business Central fyrir sendingarmáta og tengist flutningsaðilum í gegnum vefþjónustur.

 

Þegar valinn er sendingarmáti í sölupöntun sem er tengdur flutningsaðila, stofnast sjálfkrafa farmbréf fyrir þá afhendingu. Upplýsingar af farmbréfi - nafn, heimilsfang og strikamerki er hægt að prenta á límmiðaprentara og festa á sendingar.

 

Þannig einfaldar kerfið skráningu farmbréfa og auðveldar afhendingarferli sendinga sem fara út á land.

 

Rakningarnúmer flutningsaðila geymast í kerfinu og hanga við bókaða söluafhendingu og bókaðan sölureikning. Þannig er hægt að sækja stöðu sendingar hvenær sem er frá flutningsaðilanum. Öll stofnuð farmbréf geymast í kerfinu. Þannig geymist saga þeirra og auðvelt er að endurprenta límmiða þegar þarf. Einnig er hægt að stofna farmbréf eftir að afhending hefur verið bókuð. 

Farmbréfakerfi Rue de Net er tengd þessum flutningsaðilum:

  • Póstinum
  • Landflutningum
  • Flytjanda







Helstu virkni Farmbréfakerfis


Ef viðskiptamenn eru rétt stilltir, þá myndast sjálfkrafa farmbréf fyrir sendingar með Landflutningum, Flytjanda og Póstinum þegar söluafhending er bókuð. Eins er hægt að útbúa handvirkt farmbréf eftir að söluafhending er bókuð, ef viðskiptamenn / sölupöntun hefur ekki verið skráð með flutningsaðila.

Útbýr límmiða fyrir innanhús sendingar.



Share by: