Rafrænir reikningar

Rafrænir reikningar

Rue de net

Sjálfvirkar sendingar í kerfi viðskiptavina og frá birgja beint í BC.


Rafræn sending og móttaka reikninga

Af hverju Rafrænir reikningar?

Í nútíma viðskiptum snýst allt um hraða og sjálfvirkni og þar með er aukin krafa um rafræn viðskipti. Rafræn viðskipti veita yfirsýn á reikningum, hvort sem er við gerð þeirra eða móttöku. Rafrænir reikningar auðvelda allt ferli reikninga í Business Central viðskiptakerfinu, þar að auki er hægt að stórlækka kostnað við sendingu, móttöku og skráningu reikninga ásamt því að áreiðanleiki og rekjanleiki þeirra verður meiri.

Hvað gera Rafrænir reikningar?

Reikningar lesast inn sjálfvirkt og fara rafrænt í viðskiptakerfi viðskiptavina mínútum eftir bókun þeirra, þannig er á fljótlegan hátt hægt að senda viðskiptavinum rafræna reikninga, lesa inn rafrænar pantanir frá viðskiptavinum og taka við rafrænum reikningum frá birgjum. Reikningar og pantanir lesast inn sjálfkrafa í Business Central, flóknari reikningar krefjast lítillar vinnu og þar með er rekjanleiki og villuhætta í algjöru lágmarki.

Síðast en ekki síst þá eru Rafrænir reikningar umhverfisvænn kostur því með rafrænum viðskiptum er óþarfi að taka við bréfpósti, skanna inn reikninga, skjala þá og á sama hátt verður óþarfi að prenta út reikninga og senda eftir hefðbundnum leiðum.


Helstu kostir

Rafrænna reikninga?

  • Fullkomin stjórn á fjármálunum
  • Upplýst ákvörðunartaka
  • Hámarkaðu arðsemi
  • Bættu söluferlið og þjónustu
  • Heildræn sýn yfir birgðastöðu
Share by: