Eftir Steinar Sigurðsson
•
5. nóvember 2026
Gervigreind er að breyta leiknum hratt og það er ekki alltaf auðvelt að sjá hvað bíður handan við hornið. Þess vegna borgar sig að sitja í fremstu röð. Á Directions EMEA 2026 sótti okkar fólk innblástur, þekkingu og innsýn í það sem er næst í gervigreind og Business Central. Fjórir fulltrúar Rue de Net sóttu ráðstefnuna: Steinar Sigurðsson, Alfred B. Þórðarson, Halldóra Jóna Jónsdóttir og Hrólfur Hjörleifsson . París, með fallegum byggingum og líflegum kaffihúsum, var skemmtileg umgjörð fyrir bæði ráðstefnuna og fundi með samstarfsaðilum okkar. Þekking og tengsl við samstarfsaðila Mánudaginn fyrir Directions tók Steinar þátt í LS Retail AI Summit, heilsdagsviðburði þar sem LS Retail og samstarfsaðilar á borð við Rue de Net ræddu nýjustu þróun í gervigreind fyrir verslunarlausnir. Hrólfur sótti á sama tíma samstarfsdag Boltrics, þar sem farið var yfir vegvísinn fram undan og helstu nýjungar í flutningslausnum. Ferðin snerist þó ekki bara um dagskrána sjálfa. Við áttum góð samtöl við SoftwareOne og hittum samstarfsaðila úr ýmsum áttum. Þessi tengsl skipta okkur miklu máli. Þau hjálpa okkur að fylgjast vel með þróuninni og meta hvaða nýjungar geta skipt viðskiptavini okkar raunverulegu máli. Úr ráðstefnudagskránni drögum við hér fram þrjú viðfangsefni sem snerta daglegan rekstur viðskiptavina okkar. Að spyrja kerfið í stað þess að leita Microsoft sýndi hvernig Copilot getur hjálpað notendum að finna, draga saman og útskýra upplýsingar úr Business Central með spurningum á almennu máli. Notandinn getur lýst því sem hann vill vita og spurt síðan nánar út frá svarinu, án þess að þurfa að vita fyrirfram hvaða síðu eða skýrslu á að opna. Þannig getur samtalið stytt leiðina að upplýsingum, hvort sem verið er að skoða upplýsingar um viðskiptavin, greina gögn eða einfaldlega fá betri yfirsýn. Hjá Rue de Net höfum við verið að þróa VALA AI og því var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel sú vinna fellur að þeirri stefnu sem Microsoft er að marka fyrir Business Central. Fyrir okkur var það góð staðfesting á því að við erum á réttri leið. Gervigreind undirbýr, fólk heldur stjórn AI agents, eða gervigreindarfulltrúar, taka þetta skrefinu lengra. Í stað þess að svara eingöngu spurningum geta þeir tekið að sér afmörkuð verkefni og undirbúið vinnu fyrir notandann. Í kynningu á Sales Order Agent sýndi Microsoft hvernig slíkur fulltrúi getur unnið úr sölufyrirspurn og undirbúið pöntun. Sölumaðurinn getur síðan farið yfir vörurnar sem voru valdar, verð, framboð og hvenær fyrst er hægt að senda þær. Tækifærið er að minnka endurtekna skráningu og gefa starfsfólki meira svigrúm til að sinna viðskiptavinum og málum sem krefjast reynslu og mats. Færri skref í daglegri vinnu Microsoft kynnti umbætur í leit, aðgang að nýlega notuðum síðum og forskoðun skjala innan Business Central. Þær snerta verkefni sem fólk sinnir aftur og aftur. Sá sem skráir pantanir þarf oft að finna viðskiptavin, velja vörur og skoða fylgiskjöl. Færri skref og auðveldari aðgangur að upplýsingum gera vinnuna liprari. Sama á við um bókhald og innkaup, þar sem mörg lítil handtök taka drjúgan tíma samanlagt. Þess vegna snúast uppfærslur ekki bara um nýja virkni. Raunverulegi ávinningurinn kemur fyrst þegar fólk þekkir nýju möguleikana og nýtir þá í daglegri vinnu. Sirkusinn er rétt að byrja 🎪 Þessi viðfangsefni snúast öll um það sama: að eyða minni tíma í að finna og skrá upplýsingar og meiri tíma í að nýta þær. Ekki er allt sem kynnt var komið í almenna notkun og erfitt er að segja nákvæmlega hversu hratt breytingarnar verða. Eitt er þó ljóst: mikið er fram undan. Hjá Rue de Net fylgjumst við vel með þróuninni með þarfir viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Fyrir okkur skiptir mestu máli hvaða nýjungar einfalda raunveruleg verkefni og geta skapað ávinning í daglegum rekstri. Við erum líka sjálf með spennandi nýjungar í gervigreind á leiðinni sem við hlökkum til að segja frá. Fylgstu með. Við ætlum að halda okkur í fremstu röð. Viltu ræða hvað þessar breytingar geta þýtt fyrir þinn rekstur? Heyrðu í okkur og við skoðum næstu skref með þér.