LS Express

Verslanakerfi


Tækni sem einfaldar reksturinn.

LS Express er einföld og öflug skýjalausn fyrir verslanir. Lausnin sameinar sölu, birgðastýringu og þjónustu í einu kerfi ofan á sölureikning.  Lausnin er aðgengileg hvar sem er og inniheldur allt sem þarf til þess að reka verslun á skilvirkan hátt.

Helstu eiginleikar LS Express

Aðgengilegt hvar sem er

Virkar á tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Þetta gerir starfsmönnum kleift að afgreiða viðskiptavini hvar sem er.

Sjálfvirkar uppfærslur

Kerfið uppfærist sjálfkrafa. Viðskiptavinir fá því aðgang að nýjustu tækni án aukakostnaðar.

Tilbúið á nokkrum mínútum

Einföld uppsetning sem þarfnast ekki mikils undirbúnings til að byrja strax að afgreiða í.

Hvernig Strætó einfaldaði afgreiðslu

og reikningagerð með LS Express.

Strætó leitaði leiða til að einfalda afgreiðslu og reikningagerð í daglegum rekstri. Með innleiðingu LS Express var komið á einföldu og notendavænu afgreiðslukerfi sem tengist beint við Business Central og sölureikninga. Lausnin dró úr handvirkri vinnu, einfaldaði vinnuflæði starfsmanna og gerði afgreiðslu og reikningagerð hraðari og skilvirkari. Niðurstaðan var betra flæði í daglegum rekstri og einfaldari umsýsla.

Fljótlegt að setja upp. Auðvelt að nota.