Vöruhúsakerfi
WMS
Meira flæði. Minni töf.
Boltrics WMS er sérhæft vöruhúsakerfi þróað í samstarfi við fyrirtæki í flutninga- og vöruhúsageiranum. Lausnin veitir heildstæða stjórn á vöruhúsarekstri með rauntímayfirsýn, sjálfvirkum ferlum og öflugri samþættingu við Microsoft Dynamics 365 Business Central.
Helstu eiginleikar WMS
Rekjanleiki
Strikamerkjaskannar og handtölvur tryggja nákvæma skráningu og rekjanleika í gegnum allt vöruhúsakerfið.
Rauntímayfirsýn
Fylgst er með lagerstöðu, staðsetningu vara og vöruflæði í rauntíma.
Sjálfvirk áfylling
Kerfið fylgist með birgðastöðu á tínslusvæðum og getur sjálfkrafa kallað eftir áfyllingum þegar þess er þörf.
Viðskiptavinagátt
Veitir viðskiptavinum aðgang að upplýsingum um pantanir, birgðir, sendingar og reikninga í rauntíma fyrir utan kerfið.
Samþættingar og tengingar
Tengist flutningsaðilum og öðrum viðskiptalausnum og tryggir þannig samræmt upplýsingaflæði á milli kerfa.
Reikninga- og skýrslugerð
Sjálfvirk reikningagerð og öflug mælaborð sem veita skýra yfirsýn yfir rekstur, afköst og arðsemi.
Þróað
með atvinnugreininni,
fyrir atvinnugreinina.

