Aksturskerfi
TMS
Stjórnaðu ferðinni frá pöntun til afhendingar.
Boltrics aksturskerfið veitir heildstæða stjórn á flutningsrekstri, frá móttöku pantana og leiðaskipulagningu til afhendingar og reikningagerðar. Með rauntímayfirsýn, sjálfvirkum ferlum og betri samskiptum hjálpar lausnin fyrirtækjum að auka skilvirkni, bæta þjónustu og styrkja reksturinn.
Sjónrænt leiðarskipulag
Notendavæn og sjónræn yfirsýn yfir ferðir, ökutæki og nýtingu búnaðar á einum stað. Leiðir birtast á korti í rauntíma þar sem auðvelt er að bæta við stoppum, sameina sendingar og aðlaga ferðir eftir þörfum. Kerfið sýnir jafnframt álag, nýtingu og áætlaða framlegð fyrir hverja sendingu.
Með þessu sjónræna leiðarskipulagi fá stjórnendur rauntímayfirsýn yfir reksturinn og geta tekið upplýstari ákvarðanir um nýtingu, kostnað og framlegð. Þetta stuðlar að skilvirkum flutningum og betri nýtingu.
Helstu eiginleikar TMS
Flutnings- og leiðaskipulagning
Góð yfirsýn yfir verkefni, ökutæki, búnað og kostnað á einum stað með myndrænu skipulagi.
Pöntunar- og flutningastjórnun
Allt ferlið á einum stað, frá móttöku flutningspöntunar til afhendingar og reikningagerðar.
Rauntímasamskipti
Tenging við ökumannaforrit auðveldar samskipti og tryggir betra upplýsingaflæði á milli skrifstofu og ökumanna.
Allt á einum stað
Yfirsýn yfir verðskrár og samninga á einum stað til þess að tryggja samræmda og nákvæma afgreiðslu.
Rauntímayfirsýn
Rauntímayfirsýn yfir tiltæk ökutæki og stöðu verkefna.
Innbyggð reikningagerð
Sjálfvirk reikningagerð dregur úr handvirkri vinnu, flýtir innheimtu og minnkar líkur á villum.
Betra flæði í hverri ferð.

