Vala AI: Þegar Business Central verður að samtali

AI-lagið er komið: Hvað ef þú gætir einfaldlega spurt viðskiptakerfið ?
Við höfum vanist því að þurfa að kunna á viðskiptakerfið. Vita hvar upplýsingarnar liggja, hvaða skýrslu á að keyra og hvaða síur á að velja.
En hvað ef þú þyrftir ekki alltaf að vita hvar svarið er?
Hvað ef þú gætir einfaldlega spurt?
Þar kemur Vala inn í myndina.
Nýtt AI-lag ofan á reksturinn
Vala er AI-lag ofan á Microsoft Dynamics 365 Business Central. Einfaldlega sagt gerir hún þér kleift að eiga samtal við upplýsingarnar í viðskiptakerfinu í stað þess að þurfa alltaf að leita að þeim sjálf/ur.
Þú spyrð á eðlilegu máli og Vala notar upplýsingarnar sem þú hefur aðgang að í Business Central til að hjálpa þér að finna svarið. Til dæmis:
„ Hvernig hefur framlegðin þróast síðustu þrjú árin? “
„ Hvaða vörur höfum við á lager sem hafa ekkert selst síðustu 12 mánuði? “
„ Ég fæ þessa villu þegar ég reyni að bóka. Af hverju gerist þetta og hvernig laga ég það? “
Spurningarnar eru ólíkar en hugmyndin sú sama.
Þú þarft ekki alltaf að vita hvar svarið er. Þú þarft að vit hvað þú vilt vita.
Frá leit yfir í samtal
Þarna liggur ein stærsta breytingin sem gervigreind getur haft á notkun viðskiptakerfa.
Hefðbundin hugbúnaðarnotkun byrjar gjarnan á kerfinu:
Hvar er þessi aðgerð?
Hvaða skýrslu þarf ég?
Í hvaða töflu eru upplýsingarnar?
Hvaða síur þarf ég að nota?
Með AI-lagi getur upphafspunkturinn frekar orðið verkefnið sjálft.
Í stað þess að hugsa um töflur, skýrslur og síur spyr notandinn einfaldlega spurningarinnar sem hann vill fá svarið við, t.d.:
„ Hverjir skulda okkur mest miðað við hvað þeir kaupa, og hverja ætti ég að hringja í fyrst? “
eða:
„ Hvaða vörur eigum við á lager sem hafa ekkert selst síðustu 12 mánuði? Raðaðu þeim eftir bundnu fé. “
Spurningin er ekki sett fram á tungumáli gagnagrunna, skýrslna eða ERP-kerfa.
Hún er einfaldlega sett fram á mannamáli. Og það er kannski besta leiðin til að lýsa breytingunni. Við erum að færast frá því að leita okkur að upplýsingunum yfir í að eiga samtal við þær.
Munurinn liggur í samhenginu
Það er auðvitað hægt að spyrja almenn gervigreindartól alls konar spurninga um Business Central.
En það er stór munur á því að spyrja almennt:
„ Hvernig virkar framlegð? “
og:
„ Af hverju er framlegðin hjá okkur miklu hærri í ár en áður? “
Seinni spurningin krefst samhengis.
Almenn gervigreind getur þekkt Business Central vel en hún hefur ekki sjálfkrafa samhengi um gögn, uppsetningu eða sérlausnir fyrirtækisins. Þetta samhengi er einmitt lykilatriði í þróun Völu og hennar helsti styrkur. Þannig snýst málið ekki bara um gervigreind sem veit mikið. Heldur gervigreind sem getur hjálpað þér að skilja þinn rekstur.
Minni tími í að sækja gögn, meiri tími í að nota þau
Ávinningurinn verður sérstaklega áþreifanlegur þegar horft er á verkefni sem við framkvæmum aftur og aftur.
Hægt er að taka dæmi um stjórnanda sem þarf reglulega upplýsingar úr Business Central en vinnur ekki sjálfur mikið í bókhaldinu. Áður fólst ad hoc greining oft í því að sækja gögn úr kerfinu, flytja þau yfir í Excel og vinna þar áfram með pivot-töflum. Með Völu er hægt að byrja á spurningunni sjálfri. Verkefni sem áður gat kallað á 20 mínútna Excel-vinnu getur í réttu tilviki byrjað á einnar mínútu spurningu. Það er einfalt dæmi, en sýnir hvert við erum að stefna.
Markmiðið er ekki að nota meiri gervigreind.
Markmiðið er að stytta leiðina frá spurningu að upplýsingum sem hægt er að vinna með.
Ekki bara fyrir stjórnendur
Vala getur líka nýst þeim sem vinna daglega í Business Central. Ofurnotandi getur til dæmis fengið aðstoð við nýja virkni kerfisins, leitað skýringa á villu eða skoðaað möguleg gæðavandamál í gögnum. Í stað þess að byrja á að leita í handbók eða rekja sig í gegnum uppsetningu kerfisins má byrja á vandamálinu:
„Ég fæ þessa villu þegar ég reyni að bóka. Af hverju gerist þetta og hvernig laga ég það?
“
Markmiðið er ekki aðeins að gefa svar, heldur að veita samhengi og leiðsögn sem hjálpar notandanum áfram.
En má treysta AI fyrir rekstrargögnunum?
Það er eðlileg spurning. Þegar gervigreind vinnur með fjárhagsupplýsingar, viðskiptagögn og aðrar mikilvægar rekstrarupplýsingar skiptir traaust ekki síður máli en tæknin sjálf.
Vala vinnur út frá aðgangsheimildum notandans í Business Central. Notandinn á því ekki aað fáaa aðgang að gögnum sem hann hefur ekki heimild til að sjá. Í núverandi útfærslu er Vala jafnframt lesandi. Hún getur ekki bókað, breytt eða eytt gögnum. Það gerir notandanum kleift að nýta gervigreindina til að skoða, skilja og greina upplýsingar án þess að hún sé að breyta gögnunum á bak við tjöldin.
Frá því að spyrja yfir í að gera
Í dag getur Vala lesið gögn, útskýrt og leiðbeint. Framtíðarsýnin nær lengra.
Þróun gervigreindar snýst sífellt meira um að tengja saman gögn, þekkingu, kerfi og aðgerðir. Þar geta sérhæfðir AI-agentar í framtíðinni farið frá því að segja okkur hvernig verkefni er unnið yfir í að vinna verkefnið með okkur.
Þá færist þróunin frá:
Spurning → Svar
yfir í:
Spurning → Samhengi → Leiðsögn → Aðgerð
Það er hugmyndin á bak við AI-lagið. Gervigreindin verður þá ekki sérstakt tól við hliðina á vinnunni. Hún verður hluti af því hvernig vinnan er unnin.
Hættu að leita. Spurðu Völu.
Rue de Net hefur í áratugi hjálpað fyrirtækjum að fá meira út úr Microsoft Dynamics 365 Business Central.
Með Völu tökum við næsta skref og færum þekkinguna nær notandanum.
Hvað myndir þú vilja geta spurt þitt Business Central ?
Kynntu þér Völu AI eða hafðu samband og við sýnum þér hvað Vala getur gert.




