Microsoft Dynamics 365
Eiginleikar

Eiginleikar
Business Central
Microsoft Dynamics 365 Business Central er alhliða viðskiptakerfi í skýinu. Áður hét það Dynamics NAV, en með því að færa sig í skýið og sameina kerfið við Dynamics 365 var nafni kerfisins breytt og heitir það nú Business Central.
Business Central kemur í tvennskonar útgáfum: Essential og Premium.
Velja þarf annað hvort Essential eða Premium notendaleyfi, en hægt er að bæta við Team Member notendaleyfi við hvoru tveggja.

Essential notandaleyfi
Business Central Essential útgáfan inniheldur fjármálastjórnun, birgðastjórnun, tengslastjórnun, verkefnastjórnun og mannauðsstjórnun.
Fjármálastjórnun
Í fjármálastjórnun sérð þú um allan virðisaukaskatt, gjaldeyrisuppsetningu, reikningagerð og alla aðra fjármálastarfsemi.
Birgðastjórnun
Birgðastjórnun er stjórnun á flæði vöru og þjónustu. Birgðastjórnun felur í sér virka hagræðingu á framboðsstarfsemi fyrirtækisins til að hámarka verðmæti viðskiptavina og ná samkeppnisforskoti á markaðnum.
Hægt er að samstilla tengiliði þína og verkefnalista við fundi, verkefni og tengiliði í Outlook.
Í fjárhagnum getur þú sett upp eins mörg fyrirtæki og þú vilt, ásamt bókhaldslyklum, bókar fjárhagsfærslur og færslubækur, bókar virðisaukaskatt og margt fleira.
Staðsetningar
Hægt er að vinna með margar birgðageymslur eins og verksmiðju, dreifingarstöð, vöruhús, sýningarrými, verslun eða þjónustustöð.
Business Central er hluti af Dynamics 365 og er kerfið því samþætt við CRM lausnina í Dynamics 365 Sales ásamt Dynamics 365 Sales Professional og Dynamics 365 Customer Service Professional.
Víddir
Kerfið notar víddir til þess að stýra hvert kostnaður og tekjur bókast.
Vöruflutningur
Haltu utan um staðsetningu birgða. Skráðu flutninga á milli staðsetninga og haltu utan um verðmæti birgða í flutningum.
Verkefnastjórnun
Hægt að framkvæma algeng verkefnastjórnunarverkefni, svo sem að stilla og tímasetja verk, auk þess að veita þær upplýsingar sem þarf til að stjórna fjárhagsáætlunum og fylgjast með árangri.
Rekjanleiki
Rekjanleiki er sjálfkrafa til staðar ásamt bókunarlýsingum fyrir allar færslur. Hægt er að stofna ástæðukóta til rekja þína slóð.
Einfalt vöruhús
Hægt er að stjórna vörum með hólfum. Hægt er að sækja og setja vörur í hólf, færa vörur á milli hólfa og hagræða bæði plássi og tínsluferli.
Forðar
Stjórnaðu aðföngum fyrir viðskiptavini þína með forðum, ásamt forðahópum og fylgstu með stöðu hvers forða fyrir sig.
Gjaldmiðlar
Hægt er að vinna með marga gjaldmiðla í kerfinu, t.d. fyrir útgreiðslur og inngreiðslur, fjárhagsskýrslur, birgðir og bankareikninga. Hægt að gera upp í erlendri mynt.
Viðskiptamenn & Sala
Hægt er að búa til og bóka sölupantanir, sölureikninga, standandi sölupantanir, stjórna ferlum fyrir sölur og viðskiptamenn.
Áætlanir
Fylgstu með nýtingu forða, fáðu yfirsýn yfir framleiðslugetu, ásamt afhendingartíma og áætluðum kostnaði.
Fjárhagsáætlanir
Kerfið getur hjálpað þér að búa til fjárhagsáætlanir með rauntölum úr fjárhagnum.
Útistandandi reikningar
Hægt að nota færslubók til að bóka sölufærslur og útistandandi kröfur.
Verkefni
Búðu til og stjórnaðu verkefnum og fylgstu með nýtingu forða fyrir hvert verkefni og upplýsingum sem eiga að fara á sölurreikninga. Þú getur stjórnað bæði verkefnum á föstu verði ásamt verkefnum með útseldum tímum á starsfólki eða tækjum.
Framvirkir samningar
Þú getur skilgreint sniðmát fyrir framvirka samninga á tekjum og útgjöldum fyrir ákveðinn tíma.
Lánardrottnar og innkaup
Hægt er að búa til og bóka innkaupapantanir, innkaupareikninga, standandi innkaupapantanir, stjórna ferlum fyrir innkaup og lánardrottna.
Tímaskráning
Leyfðu starfsfólki að skrá tímana sína í einfalda og sveigjanlega tímatöflu þar sem samþykktaferli stjórnenda er innifalið.
Eignir
Þú getur búið til eignir og haldið utan um færslur eins og kostnað, yfirtökur, afskriftir og niðurfærslur.
Tengslastjórnun (Crm)
Tengslastjórnun auðveldar stjórnun og stuðning við markaðssetningu og sölu. Veitir nákvæmt yfirlit yfir tengiliðaupplýsingar svo hægt sé að þjónusta viðskiptavini og auka ánægju viðskiptamanna.
Stjórnun bankareikninga
Hægt að setja upp óteljandi bankareikninga með mismunandi gjaldmiðlum og býður kerfið upp á sjálfvirka afstemmingu á bankafærslum.
Tengiliðir
Kerfið heldur utan um viðskiptavini þína og lánardrottna og gerir þér kleift að stjórna upplýsingum um tengiliði og viðskiptasambönd.
Mannauðsstjórnun
Geturðu haldið nákvæmar skrár yfir starfsmenn þína. Hægt er að skrá og viðhalda starfsmannaupplýsingum, svo sem ráðningarsamningum, trúnaðarupplýsingum, hæfni og tengiliðum starfsmanna.
Tungumál
Kerfið styður mörg tungumál og hver notandi getur skipt á milli tungumála í rauntíma.
Herferðir
Þú getur skipt tengiliðum niður í viðtakendahópa og skipulagt herferðir.
Starfsfólk
Fylgstu með upplýsingum um starfsmenn, og haltu utan um reynslu, kunnáttu, menntun, þjálfun og stéttarfélög.
Tækifærastjórnun
Hægt er að búa til sölutækifæri og halda utan um fasa hvers sölutækifæris.
Stjórnun Útgjalda
Hægt er að búa til sölutækifæri og halda utan um fasa hvers sölutækifæris.
Premium notandaleyfi
Í Business Central Premium bætist við þjónustustjórnun og framleiðsla til viðbótar við Business Central Essentials leyfið.
Þjónustustjórnun
Í Þjónustustjórnun hefur fyrirtæki betri yfirsýn yfir stjórnun þjónustubeiðna, stjórnun þjónustuauðlinda, skipulag verkefnis, úthlutun þjónustuverkefna til viðeigandi starfsmanna eða teyma, verðstýring á viðhaldsþjónustu, umsjón með þjónustu- og ábyrgðarsamningum.
Þjónustupantanir
Í þjónustustjórn er hægt að stjórna þeim málum sem koma upp eftir sölu. Til dæmis fyrirspurnum um þjónustu, þjónustupantanir og viðgerðir.
Þjónustuvörur
Haltu utan um þjónustuvörur eins og innihald samninga, innihaldslýsingar, framleiðsluuppskriftir og ábyrgðir.
Þjónustuverð
Haltu utan um verð fyrir þá þjónustu sem þú býður upp á.
Þjónustusamningar
Haltu utan um öll smáatriði varðandi þjónustustig, svartíma og afslætti. Skráðu sögu samninga, ásamt nýttum forða og vinnutíma.
Skipulag
Úthlutaðu verkum til starfsfólks ásamt því að halda utan um stöðu á hverju verki fyrir sig.
Þjónustustarfsfólk
Úthlutaðu starfsfólki og sendu tæknifólk á staði, skoðaðu hvaða forðar eru lausir og hvaða kunnáttu þau búa yfir.
Framleiðsla
Fylgstu með upplýsingum um starfsmenn, og haltu utan um reynslu, kunnáttu, menntun, þjálfun og stéttarfélög.
Framleiðslupantanir
Búðu til framleiðslupantanir og bókaðu notkun á forða og aukningu á lager.
Útgáfustjórnun
Búðu til útgáfur fyrir uppskriftir og dreifileiðir.
Skipulagning birgða
Reiknaðu út nauðsynlegt magn hráefna til að uppfylla eftirspurn.. Lausnin styður framleiðsluáætlanir og hjálpar þér að skipuleggja forða- og hráefnisþörf þína.
Eftirspurnarspá
Búðu til framleiðslu- og innkaupapantanir sem taka mið af eftirspurnarspá sem tekur líka tillit til núverandi birgða og gögnum úr hráefnisáætlunum.
Skipulagning framleiðslugetu
Hægt er að auka nákvæmni í framleiðsluferlinu. Settu upp ferla fyrir framleiðslupantanir og skipulegðu nauðsynlegt magn efnis til framleiðslu.
Framleiðslustöðvar
Þú getur stjórnað afköstum í smáatriðum fyrir framleiðslustöðvar og samþætt fyrir vinnumiðstöðvar.
Takmarkað álag
Reiknaðu út hámarks framleiðslugetu til þess að ganga úr skugga um að verkefni sé ekki úthlutað á framleiðslustöð sem færi fram úr framleiðslugetu sinni fyrir gefið tímabil.
Team Member notandaleyfi
Team Member notandi, eða lesnotandi, veitir lesréttindi í Business Central ásamt öðrum takmörkuðum réttindum. Til þess að kaupa Team Member notanda verður ávallt að vera til a.m.k. einn Essential eða Premium notandi. Team Member notandaleyfi veitir aðgang í m.a.:
Lesa Gögn
Réttindi til að lesa öll gögn í Dynamics 365 Business Central.
Uppfæra Gögn
Leyfi til að uppfæra gögn og færslur sem eru nú þegar til, t.d. gögn um viðskiptamenn, lánardrottna, vörur o.þ.h.
Verkflæði
Hægt að samþykkja eða hafna verkum í verkflæði.
Tilboð
Búa til, breyta og eyða tilboðum.
Persónuupplýsingar
Búa til, breyta og eyða persónuupplýsingum.
Vinnuskýrslur
Búa til vinnuskýrslur fyrir verk.