Ánægja viðskiptavina skiptir okkur máli

11. maí 2026

Þjónustukönnun Rue de Net 2026

Kæru viðskiptavinir


Ánægja viðskiptavina og framúrskarandi þjónusta skipta Rue de Net miklu máli. Til að skilja betur hvað við gerum vel og hvar við getum bætt okkur höfum við sent út þjónustukönnun til viðskiptavina okkar.


Við leggjum mikla áherslu á álit viðskiptavina okkar og værum afar þakklát ef þið gæfuð ykkur örfáar mínútur til að veita okkur endurgjöf. Í könnuninni er meðal annars spurt um viðhorf ykkar til þjónustu Rue de Net og upplifun af samstarfinu.


Svör ykkar hjálpa okkur að þróa þjónustuna áfram og mæta væntingum ykkar enn betur.


Bestu þakkir fyrir þátttökuna,
Starfsfólk Rue de Net


microsoft dynamics 365 business central logo
12. júní 2026
Yfirlit yfir helstu nýjungar í Microsoft Business Central 28.0: birgðagreining, vöruinnsýn og bættar fjárhagsskýrslur sem styðja hraðari og snjallari ákvarðanatökur.
VR fyrirmyndrfyrirtæki Rue de Net starfsfólk
1. júní 2026
Rue de Net valið Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026 annað árið í röð. 5. sæti meðal meðalstórra fyrirtækja, sterk menning og opið hús