Anna og Berglind í nýjum lykilhlutverkum hjá Rue de Net

5. maí 2026

Rue de Net, hugbúnaðarhús hefur byggt upp sterkt og öflugt teymi í gegnum tíðina og er það trú forsvarsmanna fyrirtækisins að sterkasta auðlindin sé fólkið sem þar starfar. Sú nálgun endurspeglaðist enn frekar í nýjum lykilráðningum hjá fyrirtækinu.


Hugbúnaðarhúsið, sem sérhæfir sig í viðskiptakerfi Microsoft, Business Central, hefur ráðið Önnu Alexöndru Haraldsdóttur og Berglindi Ósk Einarsdóttur í ný hlutverk sem ætlað er að efla markaðs- og vörustefnu Rue de Net.


Með því að byggja á sterkri innri þekkingu er lögð enn ríkari áhersla á að styrkja tengslin milli vöru, markaðsmála og raunverulegra þarfa viðskiptavina. Markmiðið er skýrara vöruframboð og markvissari framsetning lausna, bæði á Íslandi og á erlendum mörkuðum.

Guðrún Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Rue de Net.


Berglind Ósk hefur tekið við nýju starfi markaðsstjóra Rue de Net. Berglind lauk BSc og MSc-námi í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og BSc-námi í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu frá 2019 í fjölbreyttum hlutverkum og sameinar sterka tæknilega þekkingu og viðskiptalega sýn.


Anna Alexandra er starfandi ráðgjafi og hefur nú einnig tekið við starfi vörustjóra Boltrics hjá Rue de Net. Anna Alexandra hóf störf hjá Rue de Net árið 2022 sem ráðgjafi og hefur leitt umfangsmikil innleiðingarverkefni, auk þess að gegna hlutverkum viðskiptastjóra og hópstjóra. Anna lauk BSc-námi í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, MSc-námi í Verkefnastjórnun frá Heriot Watt University í Edinborg og er einnig viðurkenndur bókari.


„Við leggjum ríka áherslu á að skapa umhverfi þar sem fólkið okkar fær að vaxa og dafna. Það er lykillinn að góðri þjónustu og samstarfi þar sem lausnir eru fundnar í nánu samtali við viðskiptavini“ segir Guðrún Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Rue de Net.

 

Um Rue de Net

Rue de Net er Microsoft Partner sem sérhæfir sig í viðskiptakerfinu Business Central (áður Navision), viðskiptavinir fyrirtækisins eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.


Rue de Net er íslenskt hugbúnaðarhús sem býður alhliða lausnir sem henta rekstri af öllu tagi, smásölu, þjónustu-, flutninga- og vörugeymslufyrirtæki. Rue de Net vinnur náið með viðskiptavinum sínum og tekur virkan þátt í þeirra stafrænu vegferð. 

Þjónusta Rue de Net byggir á Microsoft Dynamics 365 Business Central, sérhæfðum lausnum sem þróaðar hafa verið með íslenskan markað í huga, verslunarlausnum frá LS Retail og flutningakerfum frá Boltrics. Allar vörur Rue de Net eru aðgengilegar á Microsoft Marketplace og styðja við þá stefnu fyrirtækisins að hjálpa viðskiptavinum sínum að stíga öruggt skref í skýið og nýta viðskiptakerfið sitt sem best.  


Rue de Net leggur áherslu á langtímasamstarf, styrkja framsækni og þróa lausnir sem skapa raunverulegt virði.


Rue de Net er íslenskt fyrirtæki, stofnað á eyjunni Jersey 2003, þaðan kemur nafnið Rue de Net, þar sem götuheitin eru á frönsku. Við berum fram nafnið okkar svona: Rú de Net en það þýðir „Net-stræti“ sem hæfir vel hugbúnaðarhúsi. 


Anna og Caroline ráðgjafar Rue de Net
27. apríl 2026
Innleiðingarverkefni með Eimskip þar sem unnið var með fólkinu til að styrkja þau í að nota nýtt kerfi í Business Central. Ráðgjafar Rue de Net til staðar.
Stöðluð skýrsla um sölu
Eftir Birta Hlíðkvist Óskarsdóttir, forritari í Viðskiptalausnum 15. apríl 2026
Power BI og Dynamics 365 Business Central mynda greiningarumhverfi þar sem rekstrargögn fá samhengi og verða að raunverulegu virði. Gagnvirkar og myndrænar skýrslur.