Breytingar á verðskrá

4. nóvember 2026

Frá og með 1. nóvember 2026 tók gildi uppfærð verðskrá hjá Rue de Net.


Tímaverð þjónustu okkar hafði þá haldist óbreytt í rúm tvö ár. Í ljósi almennrar launa- og verðlagsþróunar var verðskrá þjónustu og vara Rue de Net því uppfærð.


Almennt tímaverð þjónustu hækkar úr 35.000 kr. í 36.000 kr.

Jafnframt verður tímaverð fyrir þjónustu okkar reyndustu sérfræðinga 39.000 kr.

Við leggjum áfram áherslu á faglega og persónulega þjónustu, öfluga sérfræðiþekkingu og áframhaldandi þróun lausna. Þar horfum við meðal annars til þess hvernig ný tækni og gervigreind geta einfaldað vinnu, aukið skilvirkni og skapað meira virði fyrir viðskiptavini okkar. Rue de Net leggur áherslu á persónulega þjónustu og að lausnir þróist með rekstri viðskiptavina.


Verð á vörum Rue de Net hækkar jafnframt um 10%. Það samsvarar að meðaltali um 600 kr. hækkun á einingaverði. Önnur leyfisgjöld haldast óbreytt.


Vörur Rue de Net eru þróaðar til að hjálpa fyrirtækjum að nýta Microsoft Dynamics 365 Business Central betur. Í TORGINU má finna sérhæfðar lausnir fyrir íslensk fyrirtæki, meðal annars fyrir bókhald, mannauð, sölu og innkaup, þjónustu og samþættingar.


Nánar um vörur Rue de Net


Við erum að sjálfsögðu til staðar ef þú hefur spurningar um nýju verðskrána eða vilt fá nánari upplýsingar um hvaða áhrif breytingarnar hafa á þína þjónustu.


Hafðu samband við okkur og við förum yfir málin með þér.

Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo
30. október 2026
Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo 2026. Business Central lausnir fyrir fjölbreytta rekstrar viðskiptavini.
microsoft dynamics 365 business central logo
12. júní 2026
Yfirlit yfir helstu nýjungar í Microsoft Business Central 28.0: birgðagreining, vöruinnsýn og bættar fjárhagsskýrslur sem styðja hraðari og snjallari ákvarðanatökur.