Flutningakerfi
(FMS)
Full stjórn á allri flutningskeðjunni.
Sérhæfð lausn hönnuð til þess að halda utan um allt flutningsferlið á einum stað.
Lausnin er byggð á Microsoft Dynamics 365 Business Central og hjálpar flutningafyrirtækjum að stjórna sjó-, loft- og landflutningum alveg frá fyrstu bókun til afhendingar.
Helstu eiginleikar FMS
Allt á einum stað
Heildstæð yfirsýn yfir sendingar, skjöl, kostnað, samskipti og stöðu verkefna.
Sjálfvirkar toll uppfærslur
Öll tollameðferð og tollskjöl unnin í eina og sama kerfinu.
Hröð afgreiðsla
Minni handavinna með sjálfvirkum ferlum sem tengja saman sölu, toll, rekstur og fjármál.
Betri stjórn á framlegð
Rauntímayfirsýn yfir tekjur, kostnað og framlegð hverrar sendingar.
Sjálfvirk reikningagerð
Tryggir færri villur.
Stuðningur við alla flutningsmáta
Sjó-, loft- og landflutning allt í einni lausn.
Frá tilboði til afhendingar.
Sjóflutningar
Sendingum stjórnað í einni heildstæðri lausn. Lausnin heldur utan um bókanir, farmskrár, tollskjöl og samskipti við viðskiptavini. Þannig færð þú rauntíma yfirsýn yfir hverja sendingu frá bókun til afhendingar.
Flugflutningar
Einfaldar umsýslu með flugflutningum með stuðningi við tilboðsgerð, bókanir, AWB-flutnigsskjöl og tengingar við önnur lykilkerfi. Rauntíma yfirsýn yfir stöðu sendinga tryggir skilvirkari vinnslu og betri þjónustu við viðskiptavini.
Landflutningar
Heldur utan um pantanir, flutningsskjöl, verðsamninga og stöðu sendinga í einni lausn. Með betri yfirsýn yfir verkefni, kostnað og afhendingar geta fyrirtæki aukið skilvirkni, dregið úr handavinnu og veitt viðskiptavinum nákvæmar upplýsingar um stöðu sendinga.
