BOLTRICS

FLUTNINGAKERFI

Allt í einu kerfi.

Boltrics er öflug og heildstæð lausn fyrir flutninga- og vöruhúsafyrirtæki. Lausnin sameinar vöruhúsakerfi (WMS), aksturskerfi (TMS) og flutningakerfi (FMS) ásamt tollasamskiptum í einu kerfi.


Með Boltrics geta fyrirtæki fylgst með flutningaferli vöru frá upphafi til enda og tryggt skilvirkt upplýsingaflæði milli deilda, viðskiptavina og samstarfsaðila.

Lausnin er byggð ofan á Microsoft Dynamics 365 Business Central og nýtir þannig öryggi, sveigjanleika og stöðuga þróun Microsoft skýjalausna.



Rue de Net er eini umboðsaðili Boltrics á Íslandi og aðstoðar fyrirtæki við að innleiða og nýta lausnina sem best í daglegum rekstri.

Boltrics sjálfvirknivæðir allt flutningaferlið.

Viltu læra meira um Boltrics?

Boltrics Academy og Learn 3PL Dynamics hjálpa Boltrics notendum að ná betri tökum á kerfinu með netnámskeiðum og leiðbeiningum. 

Hafa samband

Boltrics eitt stórt teymi.

30

löndum

500+

samþættingar

380+

keyrandi kerfi

6000+

notendur

Vörustjóri Boltrics

Anna Alexandra


Anna hóf störf hjá Rue de Net árið 2022 sem ráðgjafi á sviði Business Central en færðist fljótt yfir í áherslu á Boltrics. Hún hefur síðan komið að fjölbreyttum verkefnum sem ráðgjafi og er í dag aðal tengiliður Rue de Net við Boltrics.


Anna hefur unnið með flestum viðskiptavinum sem nýta Boltrics og leitt verkefni á sviði innleiðinga, þróunar og rekstrarstuðnings. Þar má nefna innleiðingu vöruhúsakerfa, flutning yfir í SaaS-umhverfi, uppsetningu verkferla, samþættingar og stuðning við gangsetningar.


Sem vörustjóri Boltrics nýtir Anna víðtæka reynslu sína til að tengja saman þarfir viðskiptavina, sérfræðiþekkingu Rue de Net og þróunarteymi Boltrics. Markmið hennar er að tryggja að lausnin skili raunverulegu virði og þróist í takt við þarfir íslenska markaðarins.

Viltu vita meira ?

Skráðu þig á póstlita fyrir Boltrics fréttir