Framadagar 2026

Berglind Ósk Einarsdóttir • 16. febrúar 2026

Rue de Net tók þátt í Framadögum Háskólans í Reykjavík 2026 sem voru haldnir 22.janúar kl. 10 til 14. Við vorum á annarri hæðinni og kynntum starfsemi okkar fyrir nemendum og gangandi gestum. Útskýrðum fyrir þeim sem vildu vita hvað við værum nú að gera, hvernig Business Central virkaði sem undirstaðan í öllum okkar lausnum, hvernig við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að ná betri árangri í daglegum rekstri og mikilvægast af öllu hvernig rétt væri að bera fram nafn fyrirtækisins.


Við erum íslenskt hugbúnaðarhús með hjartað í Business Central (Microsoft Partner) sem hefur unnið markvisst að því að sameina ungt, hæfileikaríkt fólk og reynslumeira fagfólk í sterku lærdómsumhverfi. Hjá okkur finnurðu skapandi andrúmsloft þar sem fólk fær að vaxa í starfi. Við erum stolt af fjölbreytileikanum okkar og hærra hlutfalli kvenna en gengur og gerist í tæknigeiranum, við horfum þó fyrst og fremst á hæfni og dirfkraft.

Við buðum upp á
"HITTU Í NETIÐ MEÐ RUE DE NET" sem slóg rækilega í gegn og keyrði upp keppnisskapið hjá öllum, sem er alltaf fjör. Við Halldóra vorum þarna sem fulltrúar fyrirtækisins og okkur fannst ótrúlega gaman að fá að taka þátt í þessum degi, hitta ykkur öll, taka spjallið og helst að hitta í netið með ykkur.
 

Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 16. febrúar 2026
Toppstemmning í Hörpunni hjá Rue de Net
Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 30. desember 2025
Gleðilegt nýtt ár !