Erum við að leita að þér?

Karólína Ösp Pálsdóttir • 25. febrúar 2019

Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur fyrir einhver mest spennandi fyrirtæki á Íslandi. Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað og í framlínu tæknibreytinga þá erum við að leita að þér. Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum.

Ert þú framúrskarandi FORRITARI? 

STARFSSVIÐ

  • Forritun í viðskiptakerfum Microsoft Dynamics 365 Business Central (áður kallað Dynamics NAV)
  • Forritun vefverslanakerfa í Microsoft .NET (C#)
  • Forritun skýjalausna fyrir Microsoft Azure

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólapróf í verkfræði eða tölvunarfræði
  • Þekking og reynsla af Microsoft hugbúnaði
  • Samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð

Ert þú ráðagóður RÁÐGJAFI?

STARFSSVIÐ

Starfið felst í ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina tengdum viðskiptalausnum Rue de Net

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. viðskiptafræði eða lokið námi sem viðurkenndur bókari
  • Reynsla af sambærilegu starfi mikill kostur
  • Þekking og reynsla af Microsoft Dynamics NAV hugbúnaði
  • Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í ný kerfi
  • Frumkvæði, þjónustulipurð og öguð vinnubrögð

Torfi Markússon ( torfi@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran ( thelma@intellecta.is) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 4.mars. Umsókn með ferilskrá óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo
30. október 2026
Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo 2026. Business Central lausnir fyrir fjölbreytta rekstrar viðskiptavini.
microsoft dynamics 365 business central logo
12. júní 2026
Yfirlit yfir helstu nýjungar í Microsoft Business Central 28.0: birgðagreining, vöruinnsýn og bættar fjárhagsskýrslur sem styðja hraðari og snjallari ákvarðanatökur.