Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2019

Karólína Ösp Pálsdóttir • 3. október 2019

Rue de Net er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2019, annað árið í röð!

Viðskiptablaðið í samstarfi við Kelduna gaf út blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þann 26. september og eru aðeins 2,7% fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla ströng skilyrði til þess að komast á listann. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað ársreikningi og uppfylla ýmis skilyrði. Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárinu 2018, eignir yfir 80 milljónum og afkoman þarf að hafa verið jákvæð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið yfir 20%. Auk þessa er tekið tillit til rekstrarársins 2017 og annarra þátta sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Hægt er að nálgast blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri hér.

Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo
30. október 2026
Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo 2026. Business Central lausnir fyrir fjölbreytta rekstrar viðskiptavini.
microsoft dynamics 365 business central logo
12. júní 2026
Yfirlit yfir helstu nýjungar í Microsoft Business Central 28.0: birgðagreining, vöruinnsýn og bættar fjárhagsskýrslur sem styðja hraðari og snjallari ákvarðanatökur.