Greindu reksturinn með Rue de Net og Power BI

stjori • 8. febrúar 2018

Power BI er öflugt og þægilegt greiningartól frá Microsoft sem allir geta lært á.

Kannast þú við að vera sækja alls konar skýrslur til þess að fá fulla yfirsýn yfir reksturinn? Troða saman niðurstöðum úr Excel sem enginn kann að breyta eða lesa úr? Vera ekki með réttu upplýsingarnar þegar þú þarft á þeim að halda?

Rue de Net býður upp á staðlaðar lausnir sem veita yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins með auðveldri upplýsingaöflun og greiningu á gögnunum þínum. Hér er um að ræða hraðvirkar lausnir sem ráða við mikið gagnamagn sem hægt er að sækja úr NAV, Excel og öðrum gagnagrunnum. Með Power BI gefst meiri tími til að lesa úr innihaldsríkum og vel framsettum upplýsingum í stað þess að raða saman gögnum handvirkt.

FJÁRHAGSSÝN Rue de Net  veitir góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins, enda beintengd við Dynamics NAV viðskiptakerfi þitt. Hægt er að takmarka niðurstöður á einstaka bókhaldslykla eða bókhaldsflokka sem og á tímabil og víddir.   VERSLUNARSÝN Rue de Net   greinir helstu söluupplýsingar úr bókhaldinu, t.d. samanburð á dögum, birgjum, sölumönnum og vörum.

Endilega vertu í sambandi  og fáðu kynningu á Power BI með Rue de Net . Við getum einfaldlega tengst við bókhaldskerfi þitt og sýnt þér Power BI með þínum eigin gögnum!

Eftir Þóra Rue de net 19. febrúar 2026
Í Business Central má víða finna tákn sem lítur út eins og lítil trekt. Þetta tákn gefur til kynna að hægt sé að afmarka gögn, það er að segja flokka, sía og raða upplýsingum á viðkomandi síðu fyrir skýrari afmörkun. Afmörkun gerir notendum kleift að einfalda yfirsýn, finna það sem skiptir máli hraðar og fá skýrari niðurstöður fyrir vikið. Auk þess er hægt að vista afmörkunina, þannig að hún sé tilbúin næst þegar þú vilt skoða gögnin á sama hátt aftur. Þetta sparar tíma, sérstaklega þegar þarf reglulega að fara yfir ákveðnar upplýsingar. Tökum einfalt dæmi : Segjum að við viljum reglulega skoða lista yfir alla viðskiptavini sem eru með einhverja stöðu og hafa ekki stöðu með gildi 0. Þá getum við sett upp slíka afmörkun á einfaldan hátt. Við byrjum á því að smella á trektar táknið hægra megin á listanum yfir viðskiptavini eða notum flýtileiðina " Shift + F3 " á lyklaborðinu. Til vinstri opnast þá afmörkunargluggi þar sem við skilgreinum skilyrðin sem við viljum nota til að sía listann.
Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 16. febrúar 2026
Toppstemmning í Hörpunni hjá Rue de Net