Power BI með Rue de Net

Karólína Ösp Pálsdóttir • 9. nóvember 2020

Viltu vera með puttann á púlsinum í bókhaldinu?

Power BI er greiningar- og mælaborðslausn frá Microsoft sem auðveldar þér að breyta gögnunum þínum í myndrænar upplýsingar sem auðvelt er að nota og túlka. Power BI er hraðvirk lausn sem ræður við mikið gagnamagn sem hægt er að sækja úr Dynamics 365 Business Central, Excel og fjölda annarra gagnagrunna.

Rue de Net býður upp á Fjárhags- og Verslunarsýn sem eru tilbúin mælaborð í Power BI sem auðvelda fyrirtækjum að greina lykilupplýsingar og setja þær fram á einfaldan og læsilegan máta.

Fjárhagssýn Rue de Net  veitir þér góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins enda beintengt við Business Central bókhaldskerfið þitt. Meðal annars er hægt að greina innkomu, eignir og skuldir, fjárhagsstöðu og bera saman við fjárhagsáætlun, kostnað og hagnað á vörum og EBIT-stöðu.

Verslunarsýn Rue de Net  er afar góð viðbót fyrir þau fyrirtæki með verslunarkerfið LS Central og hjálpar þér að greina sölutölur verslana. Hægt er að skoða sölu hvers dags, bera saman sölur á milli daga, sölu per starfsmann, afslætti, framlegð, körfustærð, vörur og birgja og margt fleira.

Endilega smelltu hér til að kynna þér Power BI betur!

The post Power BI með Rue de Net appeared first on Rue de Net.

Eftir Þóra Rue de net 19. febrúar 2026
Í Business Central má víða finna tákn sem lítur út eins og lítil trekt. Þetta tákn gefur til kynna að hægt sé að afmarka gögn, það er að segja flokka, sía og raða upplýsingum á viðkomandi síðu fyrir skýrari afmörkun. Afmörkun gerir notendum kleift að einfalda yfirsýn, finna það sem skiptir máli hraðar og fá skýrari niðurstöður fyrir vikið. Auk þess er hægt að vista afmörkunina, þannig að hún sé tilbúin næst þegar þú vilt skoða gögnin á sama hátt aftur. Þetta sparar tíma, sérstaklega þegar þarf reglulega að fara yfir ákveðnar upplýsingar. Tökum einfalt dæmi : Segjum að við viljum reglulega skoða lista yfir alla viðskiptavini sem eru með einhverja stöðu og hafa ekki stöðu með gildi 0. Þá getum við sett upp slíka afmörkun á einfaldan hátt. Við byrjum á því að smella á trektar táknið hægra megin á listanum yfir viðskiptavini eða notum flýtileiðina " Shift + F3 " á lyklaborðinu. Til vinstri opnast þá afmörkunargluggi þar sem við skilgreinum skilyrðin sem við viljum nota til að sía listann.
Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 16. febrúar 2026
Toppstemmning í Hörpunni hjá Rue de Net