Reykjavík Excursions velur QlikView

stjori • 15 November 2013

Reykjavík Excursions hefur fest kaup á viðskiptagreindarkerfinu (BI) QlikView af Rue de Net Reykjavík. Reykjavík Excursions mun hafa gífurlegan ávinning af QlikView, þar sem hugbúnaðurinn mun gera þeim kleift að sameina gögn frá mörgum upplýsingakerfum í eina sýn. Reykjavík Excursions getur nú borið saman sölutölur og bókanir milli ára í eina og sama skjalinu. Þetta gerir það að verkum að fyrirtækið getur búið til á fljótvirkan hátt mjög nákvæmar áætlanir, skýrslur og yfirlit sem byggja á nýjustu upplýsingum hverju sinni.

„Eftir að við byrjuðum að nota QlikView höfum við getað búið til á mjög fljótvirkan hátt betri og nákvæmar áætlanir og skýrslur. Við erum nú með mun betri yfirsýn yfir reksturinn og getum brugðist við fyrr en ella þegar við sjáum sveiflur. Þetta er tól sem hreinlega öll fyrirtæki ættu að eiga“, segir Þórarinn Þór sölu- og markaðsstjóri hjá Reykjavík Excursions.

Um Reykjavík Excursions

Allt frá stofnun þess 1968 hefur Reykjavík Excursions verið leiðandi fyrirtæki í dagsferðum hér á Íslandi og er í dag fullgild ferða- og umboðsskrifstofa. Reykjavík Excursions býr yfir einum stærsta langferðbílaflota landsins sem gerir það um leið að einu fremsta fyrirtæki landsins í skipulagningu á ferðum bæði fyrir einstaklinga og hópa.

The post Reykjavík Excursions velur QlikView appeared first on Rue de Net.

by Berglind Ósk Einarsdóttir 11 November 2025
Rue de Net styrkir björgunarsveitir og slysavarnardeildir með kaupum á Neyðarkalli 2025
by Berglind Ósk Einarsdóttir 4 November 2025
Við hjá Rue de Net erum stolt af því að vera eitt af þeim fyrirtækjum sem hlutu viðurkenninguna: Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2025 sem er stamstarfsverkefni Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Þessi viðurkenning er veitt fyrirtækjum sem sýna fram á traustan og ábyrgan rekstur, stöðugan vöxt og góða afkomu. Aðeins 2,6 % fyrirtækja á Íslandi komast á þennan lista. Þökkum flotta viðurkenningu, staðfesting á frábæru starfi starfsfólks Rue de Net, og tökum henni sem hvatningu til að halda áfram á okkar vegferð.