Rue de Net er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2020

Karólína Ösp Pálsdóttir • 15. október 2020

Rue de Net er Fyrirmyndar fyrirtæki í rekstri árið 2020, þriðja árið í röð!

Viðskiptablaðið í samstarfi við Kelduna gaf út blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í dag og eru aðeins 2,7% fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla ströng skilyrði til þess að komast á lista Fyrirmyndar fyrirtækja í rekstri 2020. Fyrirtækin þurfa að hafa skilað ársreikningi og uppfylla ýmis skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2019 og 2018 en rekstrarárið 2017 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2019 og 2018.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárunum 2019 og 2018.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2019 og 2018.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.
  • Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Hægt er að nálgast blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri hér.

Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo
30. október 2026
Rue de Net Framúrskarandi Fyrirtæki Creditinfo 2026. Business Central lausnir fyrir fjölbreytta rekstrar viðskiptavini.
microsoft dynamics 365 business central logo
12. júní 2026
Yfirlit yfir helstu nýjungar í Microsoft Business Central 28.0: birgðagreining, vöruinnsýn og bættar fjárhagsskýrslur sem styðja hraðari og snjallari ákvarðanatökur.