Rue de Net styrkir Ás styrktarfélag

stjori • 6. júní 2013

Rue de Net hefur í gegnum árin veitt styrki til ýmissa verkefna á sviði mannúðarmála, rannsókna og vísinda, forvarnar- og æskulýðsstarfs og sértækrar útgáfustarfsemi. Í ár ákvað Rue de Net að styrkja eitt málefni og er það Ás styrktarfélag sem varð fyrir valinu árið 2013. Hljóðar styrkurinn í ár upp á 150.000 kr.

„Við erum afskaplega þakklát fyrir þann velvilja og hugulsemi sem Rue de Net sýnir félaginu með þessari gjöf. Hún mun nýtast vel til nýsköpunar og verkefna hjá félaginu sem ekki er hægt að fjármagna með öðrum hætti,  segir Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri  félagsins.

Ás styrktarfélag  er sjálfseignarstofnun og hefur í gegnum árin komið á fót umfangsmiklum rekstri. Þá hefur félagið notið velvilja og hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki átt drjúgan þátt í að styðja félagið til vaxtar. Í dag veitir Ás styrktarfélag  hátt á þriðja hundrað manns þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og vinnu. Ás styrktarfélag rekur 9 heimili í Reykjavík og 1 í Kópavogi. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu. Virðing fyrir einstaklingnum og sjálfræði hans skal vera leiðarljós í allri þjónustu. Horft er til þess að allir njóti lífsgæða, taki þátt í samfélaginu á eigin forsendum, hafi gott einkarými eða sér íbúð og njóti friðhelgi á eigin heimili.

Starfsmenn Rue de Net óska Ás styrktarfélagi farsældar í mikilvægum verkefnum sínum og vonar að styrkurinn komi að góðum notum.

Bjarni Þór Bjarnason og Þóra Katrín Gunnarsdóttir starfsmenn Rue de Net afhentu Þóru Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra Áss styrktarfélags styrkinn.

Eftir Þóra Rue de net 19. febrúar 2026
Í Business Central má víða finna tákn sem lítur út eins og lítil trekt. Þetta tákn gefur til kynna að hægt sé að afmarka gögn, það er að segja flokka, sía og raða upplýsingum á viðkomandi síðu fyrir skýrari afmörkun. Afmörkun gerir notendum kleift að einfalda yfirsýn, finna það sem skiptir máli hraðar og fá skýrari niðurstöður fyrir vikið. Auk þess er hægt að vista afmörkunina, þannig að hún sé tilbúin næst þegar þú vilt skoða gögnin á sama hátt aftur. Þetta sparar tíma, sérstaklega þegar þarf reglulega að fara yfir ákveðnar upplýsingar. Tökum einfalt dæmi : Segjum að við viljum reglulega skoða lista yfir alla viðskiptavini sem eru með einhverja stöðu og hafa ekki stöðu með gildi 0. Þá getum við sett upp slíka afmörkun á einfaldan hátt. Við byrjum á því að smella á trektar táknið hægra megin á listanum yfir viðskiptavini eða notum flýtileiðina " Shift + F3 " á lyklaborðinu. Til vinstri opnast þá afmörkunargluggi þar sem við skilgreinum skilyrðin sem við viljum nota til að sía listann.
Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 16. febrúar 2026
Toppstemmning í Hörpunni hjá Rue de Net