Opnar dyr, traust og stolt – Rue de Net er Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026

1. júní 2026

Rue de Net hefur annað árið í röð verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki í könnun VR um Fyrirtæki ársins 2026. Könnunin er ein umfangsmesta vinnustaðakönnun landsins og byggir alfarið á upplifun og viðhorfum starfsfólks, sem gerir viðurkenninguna sérstaklega dýrmæta.


Í ár náðum við 5. sæti í flokki meðalstórra fyrirtækja. Fyrir okkur er þessi viðurkenning fyrst og fremst staðfesting á þeirri menningu sem hefur byggst upp í sameiningu – þar sem traust, opin samskipti og gagnkvæm virðing eru grunnurinn að daglegu starfi. Hér haldast sjálfstæði og ábyrgð í hendur og jafnvægi milli vinnu og einkalífs er raunverulegt, ekki aðeins orð á blaði. Tækifæri til faglegs þroska eru skýr og allir hafa jöfn tækifæri, óháð bakgrunni eða hlutverki.


Nýja skrifstofan okkar styður vel við þessa sýn með góðri vinnuaðstöðu, rýmum sem hvetja til samvinnu og notalegri kaffiaðstöðu – enda skiptir miklu máli að fólki líði vel og sé stolt af vinnustaðnum sínum. Við lítum á þessa viðurkenningu ekki sem endastöð heldur sem ábyrgð og hvatningu til að halda áfram að hlusta, læra og þróa Rue de Net sem vinnustað þar sem fólk treystir sér til að vera það sjálft og gera sitt besta. Kannski felst þetta allt í einföldum hlutum: opnum dyrum, opnu samtali og góðum kaffibolla.


Um leið viljum við leggja áherslu á að Rue de Net er ekki aðeins hugbúnaðarhús heldur líka opið hús. Við tökum alltaf vel á móti fólki í heimsókn á nýju skrifstofuna – í spjall og góðan kaffibolla.

  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
Sindri skoðar nýtt POS viðmót í LS Central á conneXion 2026
Eftir Sindri Snær Þorsteinsson 26. maí 2026
Lærdómur frá conneXion 2026 þar sem LS Central verslunarkerfi sýnir áþreifanlegar framfarir í daglegum rekstri, þjónustu og innsýn.
11. maí 2026
Þjónustukönnun Rue de Net 2026