Rue de Net setur upp viðskiptavinavef hjá Johan Rönning hf.

stjori • 22. mars 2012

Rue de Net Reykjavík hefur nýverið sett upp viðskiptavinavef með rafrænu aðgengi  fyrir Johan Rönning hf. Viðskiptavinavefurinn gerir viðskiptavinum þeirra kleift að skoða öll reikningsviðskipti sín, s.s. hreyfingaryfirlit, afrit af reikningum og stöðu sína. Reikningana er hægt að sækja í Pdf formi eða á Xml formi. Um er að ræða mikla hagræðingu bæði fyrir Johan Rönning hf. og viðskiptavini þeirra.

Johan Rönning hf hefur starfað í 70 ár og átt þannig þátt í rafvæðingu landsins frá upphafi. Fyrirtækið býr yfir mikilli þekkingu og leggur áherslu á góða heildarþjónustu við viðskiptavininn. Hjá Johan Rönning hf. starfar sérþjálfað starfsfólk sem hefur mikla þekkingu á tækni- og rafbúnaðnum sem þeir þjónusta.

microsoft dynamics 365 business central logo
12. júní 2026
Yfirlit yfir helstu nýjungar í Microsoft Business Central 28.0: birgðagreining, vöruinnsýn og bættar fjárhagsskýrslur sem styðja hraðari og snjallari ákvarðanatökur.
VR fyrirmyndrfyrirtæki Rue de Net starfsfólk
1. júní 2026
Rue de Net valið Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026 annað árið í röð. 5. sæti meðal meðalstórra fyrirtækja, sterk menning og opið hús