Icelandic Services nýr viðskiptavinur Rue de Net

stjori • 13. maí 2013

Rue de Net Reykjavík og Icelandic Services (IS) dótturfyrirtæki Icelandic Group hafa gert með sér samning um samstarf. Icelandic Group er alþjóðlegt fyrirtæki með nærri sjö áratuga sögu í íslenskum sjávarútvegi. Þjónusta við íslenska fiskframleiðendur leikur lykilhlutverk í starfseminni og starfar þar samhentur hópur að því að stilla saman veiðar, vinnslu, flutning, framleiðslu og sölu sjávarfangs um víða veröld.

Icelandic Services tekur þátt í innri þjónustu margra samstæðufélaga Icelandic Group á sviði gæðamála, flutningaþjónustu, birgða, skjalagerðar auk þess að sjá um rekstur vefgáttar (Iceport). Hluti þessarar vefgáttar felur í sér veiting upplýsinga til fiskframleiðenda, t.d. um pantanir og merkingar pakkninga.

Það er uppfærsla á svokölluðu Miðakerfi, sem notað er til hönnunar og veitunar á pakkningamerkingum til fiskframleiðenda, sem samstarf Icelandic Services og Rue de Net Reykjavík hefst á. Verður Miðakerfið nú útfært með beintengingu við viðskiptakerfi fyrirtækisins, sem er í Microsoft Dynamics NAV. Mun Rue de Net Reykjavík annast alla forritun á Miðakerfinu auk hönnunar á nýju útliti.

Verið hjartanlega velkomin í viðskiptavinahóp Rue de Net Reykjavík!

11. maí 2026
Þjónustukönnun Rue de Net 2026
Anna vörustjóri Boltrics og Berglind markaðsstjóri
5. maí 2026
Hugbúnaðarhúsið, sem sérhæfir sig í viðskiptakerfi Microsoft, Business Central, hefur ráðið Önnu Alexöndru Haraldsdóttur og Berglindi Ósk Einarsdóttur í ný hlutverk.