UTmessan 2026

Berglind Ósk Einarsdóttir • 16. febrúar 2026

Toppstemmning í Hörpunni hjá Rue de Net

Rue de Net tók með stolti þátt í UTmessunni 2026 sem fór fram í Höpru dagana 6. - 7. febrúar. Vorum á annarri hæðinni og tókum spjallið á ráðstefnu- og opna tæknideginum við gesti og gangandi. Húsið var stútfullt af fólki úr öllum hornum íslensks tæknigeira og gaman að fá að sjá og taka þátt í þessum dögum.


Við vorum með glæsilegan bás með mjög svo grænu þema á sýningarsvæðinu sem naut mikillar aðsóknar gesta. Sérstaka athygli vakti körfuboltaleikurinn "HITTU Í NETIÐ MEÐ RUE DE NET" sem skapaði fjöruga stemmningu í kringum básinn. Annað sem vakti mikla lukku, sérstaklega á laugardeginum, var hágæða espresso kaffivélin þar sem ófáir þreyttir foreldrar tóku við rjúkandi heitum bolla með bros á vör. Það er markmið Rue de Net að skapa upplifunina "komdu í kaffi og spjall", þar sem gestir geti bæði fræðst um fyrirtækið, lausnir í boði og notið notalegra samskipta við teymið.


Við Halldóra og Ólafur tókum spjallið báða dagana um Business Central og ýmsar viðskiptalausnir sem eru í boði hjá Rue de Net, þar sem tæknin og mannlegi þátturinn mætast.  UTmessan fékk metaðsókn þetta árið, þar sem um 1.400 manns mættu á ráðstefnuna og um 12.000 gestir á opna tæknideginum. Við vorum í skýjunum með þennan fjölsótta viðburð og að taka þátt í að kynna tækninýjungar fyrir bæði fagfólki og fjölskyldum.


Við skilum innilegu þakklæti til allra sem komu við í básnum, spjölluðu, tóku þátt í körfuboltaleiknum, gripu sér kaffi eða bókuðu fund. Það var einstaklega gaman að hitta svona marga áhugasama aðila, bæði tilvonandi samstarfsaðila og viðskiptavini. Það var hægt að bóka fría ráðgjöf þá sem vilja taka spjallið við okkur um næstu skref í Business Central viðskiptalausnum.
Bókaðu fría ráðgjöf

Bókaðu Fría Ráðgjöf
11. maí 2026
Þjónustukönnun Rue de Net 2026
Anna vörustjóri Boltrics og Berglind markaðsstjóri
5. maí 2026
Hugbúnaðarhúsið, sem sérhæfir sig í viðskiptakerfi Microsoft, Business Central, hefur ráðið Önnu Alexöndru Haraldsdóttur og Berglindi Ósk Einarsdóttur í ný hlutverk.