Afmarkaðu - enginn nær fókus með allt í fókus !

Í Business Central má víða finna tákn sem lítur út eins og lítil trekt. Þetta tákn gefur til kynna að hægt sé að afmarka gögn, það er að segja flokka, sía og raða upplýsingum á viðkomandi síðu fyrir skýrari afmörkun. Afmörkun gerir notendum kleift að einfalda yfirsýn, finna það sem skiptir máli hraðar og fá skýrari niðurstöður fyrir vikið.
Auk þess er hægt að vista afmörkunina, þannig að hún sé tilbúin næst þegar þú vilt skoða gögnin á sama hátt aftur. Þetta sparar tíma, sérstaklega þegar þarf reglulega að fara yfir ákveðnar upplýsingar.
Tökum einfalt dæmi: Segjum að við viljum reglulega skoða lista yfir alla viðskiptavini sem eru með einhverja stöðu og hafa ekki stöðu með gildi 0. Þá getum við sett upp slíka afmörkun á einfaldan hátt. Við byrjum á því að smella á trektar táknið hægra megin á listanum yfir viðskiptavini eða notum flýtileiðina "Shift + F3" á lyklaborðinu. Til vinstri opnast þá afmörkunargluggi þar sem við skilgreinum skilyrðin sem við viljum nota til að sía listann.

Næsta skref er að setja upp afmörkunina sjálfa. Við byrjum á því að velja „Afmarka lista eftir…“ og pikka síðan á „+ Afmörkun…“. Þá birtist yfirlit yfir þær afmarkanir sem í boði eru. Hægt er að setja fleiri en eina afmörkun saman, en í þessu dæmi ætlum við einungis að velja dálkinn „Staða (SGM)“, þar sem markmiðið er að sýna eingöngu viðskiptamenn sem eru með einhverja stöðu.
Til að tryggja að sýndur verði listi yfir alla viðskiptamenn sem hafa stöðu með öðru gildi en núll (0), setjum við inn afmörkunina „<>0“ (nánar um uppsetningu á mismunandi afmörkunum má finna hér).
Þegar afmörkun hefur verið virkjuð sést það skýrt á því að trektartáknið fyllist og verður grátt, merki um að afmörkun sé í gildi á þessum dálki.
Viljum við varðveita þessa afmörkun til framtíðar, veljum við táknið sem minnir á gömlu tölvudisklingana með pennanum. Þá opnast gluggi þar sem hægt er að skýra afmörkunina með nafni. Í þessu tilviki höfum við skýrt hana „Með stöðu <>0“.
Næst þegar farið er í lista yfir viðskiptamenn er þessi afmörkun þegar tilbúin, aðeins þarf að velja hana af listanum til að fá strax þá viðskiptamenn sem hafa stöðu með gildi öðru en núlli. Þetta nýtist afar vel til að byggja upp hinar ýmsu sérsniðnu afmarkanir, til að mynda: lista yfir þá sem skulda meira en milljón, viðskiptamenn sem eru með inneign, þá sem ekki fá sendar sjálfvirkar kröfur eða hópa sem hafa stöðu yfir ákveðnu marki o.s.frv.
Fyrir einfaldari vinnubrögð í BC þá skal ekki vanmeta lyklaborðs flýtileiðirnar, í þessu tilviki er það F3 sem hægt er að fá nánari lýsingu á virkni möguleikum hér.
Afmörkunareiginleikinn í
Business Central gerir þetta allt einfalt, endurnýtanlegt og mjög skilvirkt.


