Ert þú framúrskarandi forritari?

stjori • 21. janúar 2019

Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að framúrskarandi og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur við forritun fyrir einhver mest spennandi fyrirtæki á Íslandi.

Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað og í framlínu tæknibreytinga þá erum við að leita að þér. Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum.

Verkefni

  • Forritun í viðskiptakerfum Microsoft Dynamics 365 Business Central (áður kallað Dynamics NAV)
  • Forritun vefverslanakerfa í Microsoft .NET (C#)
  • Forritun skýjalausna fyrir Microsoft Azure

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í verkfræði eða tölvunarfræði
  • Þekking og reynsla af Microsoft hugbúnaði
  • Samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð

Torfi Markússon ( torfi@intellecta.is ) og Thelma Kristín Kvaran ( thelma@intellecta.is ) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 28.janúar. Umsókn með ferilskrá óskast fyllt út á  Intellecta. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Eftir Þóra Rue de net 19. febrúar 2026
Í Business Central má víða finna tákn sem lítur út eins og lítil trekt. Þetta tákn gefur til kynna að hægt sé að afmarka gögn, það er að segja flokka, sía og raða upplýsingum á viðkomandi síðu fyrir skýrari afmörkun. Afmörkun gerir notendum kleift að einfalda yfirsýn, finna það sem skiptir máli hraðar og fá skýrari niðurstöður fyrir vikið. Auk þess er hægt að vista afmörkunina, þannig að hún sé tilbúin næst þegar þú vilt skoða gögnin á sama hátt aftur. Þetta sparar tíma, sérstaklega þegar þarf reglulega að fara yfir ákveðnar upplýsingar. Tökum einfalt dæmi : Segjum að við viljum reglulega skoða lista yfir alla viðskiptavini sem eru með einhverja stöðu og hafa ekki stöðu með gildi 0. Þá getum við sett upp slíka afmörkun á einfaldan hátt. Við byrjum á því að smella á trektar táknið hægra megin á listanum yfir viðskiptavini eða notum flýtileiðina " Shift + F3 " á lyklaborðinu. Til vinstri opnast þá afmörkunargluggi þar sem við skilgreinum skilyrðin sem við viljum nota til að sía listann.
Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 16. febrúar 2026
Toppstemmning í Hörpunni hjá Rue de Net