Rue de Net kaupir stóra Neyðarkallinn 2018
stjori • 5. nóvember 2018

Rue de Net er virkt í því að styrkja hin ýmsu málefni á hverju ári. Það sem varð fyrir valinu meðal annars þetta árið var kaup á stóra Neyðarkallinum til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg. En gaman er að segja frá því að fjórir starfsmenn Rue de Net eru meðlimir í Slysavarnafélagi Landsbjargar.
Á myndinni má sjá Einar Karl Einarsson og Stellu Rut Guðmundsdóttur ráðgjafa hjá Rue de Net og meðlimi björgunarsveitanna ásamt Neyðarkallinum í ár.
Rue de Net hvetur alla til að styrkja þetta verðuga málefni og festa kaup á á Neyðarkallinum.

Í Business Central má víða finna tákn sem lítur út eins og lítil trekt. Þetta tákn gefur til kynna að hægt sé að afmarka gögn, það er að segja flokka, sía og raða upplýsingum á viðkomandi síðu fyrir skýrari afmörkun. Afmörkun gerir notendum kleift að einfalda yfirsýn, finna það sem skiptir máli hraðar og fá skýrari niðurstöður fyrir vikið. Auk þess er hægt að vista afmörkunina, þannig að hún sé tilbúin næst þegar þú vilt skoða gögnin á sama hátt aftur. Þetta sparar tíma, sérstaklega þegar þarf reglulega að fara yfir ákveðnar upplýsingar. Tökum einfalt dæmi : Segjum að við viljum reglulega skoða lista yfir alla viðskiptavini sem eru með einhverja stöðu og hafa ekki stöðu með gildi 0. Þá getum við sett upp slíka afmörkun á einfaldan hátt. Við byrjum á því að smella á trektar táknið hægra megin á listanum yfir viðskiptavini eða notum flýtileiðina " Shift + F3 " á lyklaborðinu. Til vinstri opnast þá afmörkunargluggi þar sem við skilgreinum skilyrðin sem við viljum nota til að sía listann.

