Við leitum að forritara

Karólína Ösp Pálsdóttir • 5. júní 2019

Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur. Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað og í framlínu tæknibreytinga þá erum við að leita að þér.
Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum.

STARFSSVIÐ

  • Forritun í viðskiptakerfum Microsoft Dynamics 365 Business Central / Dynamics NAV
  • Forritun vefverslanakerfa í Microsoft .NET (C#)
  • Forritun skýjalausna fyrir Microsoft Azure

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólapróf í verkfræði eða tölvunarfræði
  • Þekking og reynsla af Microsoft hugbúnaði
  • Samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon ( torfi@intellecta.is ) og Thelma Kristín Kvaran ( thelma@intellecta.is ) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511 1225.

Umsóknarfrestur er til og með 14.júní. Umsókn með ferilskrá óskast fyllt út á Intellecta. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

The post Við leitum að forritara appeared first on Rue de Net.

Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 30. desember 2025
Gleðilegt nýtt ár !
Eftir Berglind Ósk Einarsdóttir 11. nóvember 2025
Rue de Net styrkir björgunarsveitir og slysavarnardeildir með kaupum á Neyðarkalli 2025