TORGIÐ
FARMBRÉF
Farmbréfakerfið frá Rue de Net býður notendum upp á að stofna farmbréf í gegnum vefþjónustur flutningsaðila beint úr Business Central. Við bókun söluafhendingar myndast sjálfkrafa farmbréf fyrir sendingar með Landflutningum, Flytjanda og Póstinum. Fljótlegt ferli með nákvæmri skráningu farmbréfa.
Einföld afhending sendinga!

Sjálfvirkni og rekjanleiki í fyrirrúmi !
- Sjálfvirk myndun farmbréfa við söluafhendingu.
- Rakningarnúmer geymd og tengd við söluskjöl.
- Auðvelt að sækja stöðu sendingar.
- Áreiðanlegar upplýsingar fyrir flutningsaðila á útprentuðum límmiða.
- Minni handavinna skilar tímasparnaði.
Nákvæmt ferli.
Sendingarmáti tengdur flutningsaðila er valinn í sölupöntun í Business Central, við það stofnast sjálfkrafa farmbréf fyrir þá afhendingu. Upplýsingar af farmbréfi er hægt að prenta í límmiðaprentara og festa á sendingar. Rakningarnúmer flutningsaðila er tengt við bókaða söluafhendingu og bókaðan sölureikning. Hægt að sækja stöðu sendingar hvenær sem er. Öll stofnuð farmbréf eru geymd í kerfinu fyrir auðveldan aðgang að sögu sendinga og endurprentun límmiða.

Fáðu sem mest út úr þínu viðskiptakerfi.
