TORGIÐ
VIÐSKIPTAVINAVEFUR
Viðskiptavinir geta skoðað reikningsviðskipti sín á netinu. Með einfaldri innskráningu og nokkrum smellum geta viðskiptavinir fengið aðgang að öllum upplýsingum sem þeir þurfa eins og hreyfingaryfirlit, afrit af reikningum, stöðu viðskiptaskuldar og tollskýrslur.
Einfaldur aðgangur að upplýsingum!

Einfalt og þægilegt!
- Reikningar sýnilegir strax við bókun.
- Mikilvægar upplýsingar á öruggum stað.
- Beintenging við Microsoft Business Central.
- Sparnaður á kostnaði og tíma í samskiptum.
- Aðgangsstýring viðskiptavina.
Hvernig virkar þetta?
Viðskiptavinir þínir fá sérstakan aðgang sem felur í sér notandakenni og lykilorð fyrir: Mínar síður. Þar geta viðskiptavinir séð öll sín viðskipti og flokkað bæði eftir dagsetningum og milli greiddra og ógreiddra reikninga. Hægt er að sækja öll skjöl sem PDF til þess að senda áfram í tölvupósti eða prenta út. Útlit vefsins er hægt að sérsníða fyrir hvern viðskiptavin.
Af hverju Viðskiptavinavefur?
Viðskiptavinavefur er beintengdur við viðskiptakerfið Business Central. Lausn sem er þægileg í notkun og mjög notendavæn. Á handhægan hátt geta viðskiptavinir skoðað yfirlit yfir alla sína reikninga og viðskiptastöðu. Með Viðskiptavinavefnum geta fyrirtæki veitt viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu og um leið sparað tíma og kostnað.
TORGIÐ
Fáðu sem mest út úr þínu viðskiptakerfi.

